05.06.1941
Neðri deild: 71. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (2368)
128. mál, sauðfjársjúkdómar
Bjarni Ásgeirsson:
Ég sé ekki annað en að það, sem hæstv. landbrh. sagði, falli nákvæmlega saman við það, sem ég sagði um þetta mál f. h. n., og get ég látið mér það vel lynda. Ég taldi, að framkvæmdanefnd þessa máls hefði þetta atriði í hendi sér, hvort hún vildi undir sérstökum kringumstæðum taka þátt í kostnaðinum við þessa flutninga. En hins vegar lýsti ég því yfir, að það hefði ekki verið yfirleitt gert á undanförnum árum, Þó að einstök dæmi kunni að finnast. Og þess vegna er það alls ekki rétt hjá hv. þm. N.-Þ., að það að leggja á móti till. hans sé í ósamræmi við stefnu málsins á undanförnum árum. Það er alveg í samræmi við þá stefnu, sem fylgt hefur verið, að fjáreigendur sjálfir hafa orðið að bera kostnað af flutningunum. (GG: Ekki kostnaðinn við girðingarnar). Það eiga þeir ekki heldur að gera, sem hér eftir fá girðingar í námunda við sig. Ég verð að segja, að það, sem hv. þm. fer fram á nú, að tekinn væri nokkur þáttur í kostnaðinum, Þar sem hann kynni að verða meiri á einum stað en yfirleitt á öðrum, það kemur alls ekki fram í brtt., heldur er samkv. henni ætlazt til, að borinn sé allur kostnaður af flutningi fjárins. Og það er vitanlega í hæsta máta ósanngjörn krafa, því að alltaf kostar eitthvað að flytja féð, og meira að segja hafa bændur stundum talið sér engan óhag að flytja fé á bílum, samanborið við að reka það.
En sem sagt, ég stend við það, að ég legg á móti hví, að till. verði samþ., því að ég óttast svo aukinn kostnað vegna þessa máls, sem ekki sé á bætandi. En hins vegar hefur n. í hendi sér, eða landbrh. í broddi fylkingar, heimild samkv. öðrum ákvæðum þessara 1. til að veita nokkurn stuðning í þessu sem öðru, þar sem sérstaklega stendur á, að fjáreigendur verða hart úti.