04.06.1941
Neðri deild: 70. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (2386)

139. mál, stríðsslysatrygging sjómanna

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Ég vil aðeins geta þess, að ég tek aftur brtt. á þskj. 444, þar sem fyrri brtt. n. á þskj. 676 gengur í líka átt, og hún er gerð í samráði við mig, að nánar athuguðu máli og eftir viðræður við fulltrúa útgerðarmanna.

Að öðru leyti hef ég ekkert um brtt. að segja. Ég tel þær til bóta og get mælt með því, að þær verði samþ.