16.04.1941
Neðri deild: 36. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (2396)

94. mál, girðingar til varnar gegn útbreiðslu sauðfjársjúkdóma og fjárskipta

Gísli Guðmundsson:

Því er yfirlýst hér, að frsm. málsins (BÁ) sé ekki við, og mér virðist það fremur óviðfelldið, að þetta stóra mál fari hér gegnum þessa umr. án þess að nokkur grein sé fyrir því gerð af neinum málsaðila. Þess vegna vildi ég stinga upp á því við hæstv. forseta, að þessari umr. yrði frestað, þangað til hv. frsm. málsins gæti verið viðstaddur eða einhver úr hv. landbn., sem gæti gert grein fyrir málinu, því hugsanlegt væri, að einhver annar en hv . frsm. gæti fylgt því úr hlaði.