05.06.1941
Efri deild: 72. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 995 í B-deild Alþingistíðinda. (2578)

70. mál, Háskóli Íslands

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Það er vika síðan þetta mál, frv. til l. um breyt. á áfengislögunum, var hér til umr. síðast. Það hefur fengið seina afgreiðslu í Nd., og þar sem málinu þarf að ljúka hið fyrsta, hef ég farið þess á leit, að það yrði tekið á dagskrá núna. Ég geri ekki ráð fyrir miklum umr. um málið og álít því skaðlaust, þó það fengi að halda sessi sínum á dagskránni. Annars er það á valdi hæstv. forseta og deildarmanna, hvort það verður rætt á undan eða eftir.