05.06.1941
Efri deild: 72. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 995 í B-deild Alþingistíðinda. (2579)

70. mál, Háskóli Íslands

Þorsteinn Þorsteinsson:

Úr því farið er að tala um að hraða málinu, þá vil ég spyrja hæstv. forseta, hvort ekki mætti taka 5. málið á dagskránni dálítið fram fyrir. Þetta er mikilsvert mál fyrir landbúnaðinn, og þarf að hraða því. Á því hafa verið gerðar breyt. hér í hv. d., og verður því að endursenda það Nd., og er áríðandi, að það verði ekki fyrir töfum hér núna.