27.03.1941
Neðri deild: 24. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í B-deild Alþingistíðinda. (26)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Vegna fyrirspurnar hv. þm. Barð. vil ég upplýsa, að ríkisstj. hefur tekið þetta mál til rækilegrar íhugunar, en tel, að eins og málið liggur fyrir, sé ekki rétt að birta ákvarðanir ríkisstj. fyrr en þau boð, sem hún kynni að vilja koma á framfæri, væru komin rétta boðleið í hendur þeim aðila, er hlut á að máli.