16.06.1941
Efri deild: 81. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1027 í B-deild Alþingistíðinda. (2601)

70. mál, Háskóli Íslands

Þorsteinn Þorsteinsson:

Þar sem Alþingi hefur nú samþ. milliþinganefnd, er athugi skólamál vor og geri tillögur um þau og þar á meðal þetta mál, sem frv. þetta fjallar um, og ég treysti því, að kennslumálaráðuneytið muni leggja fyrir næsta Alþingi frv. um þau atriði, sem frv. fjallar um, en ég ekki alls kostar ánægður með frv. og tel ekki bráða nauðsyn að samþ. það, þá segi ég nei.