19.05.1941
Efri deild: 63. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (2688)

136. mál, ófriðartryggingar

Forseti (EÁrna) :

Áður en gengið er til atkv., vil ég benda á, að mál þetta er mjög mikilvægt, og er svo til ætlazt, að það fái afgreiðslu á þessu þingi. En þar sem nú er mjög liðið á þing og málið á eftir að fara til Nd., þá hefur mér komið til hugar, hvort hv. allshn. muni geta fallizt á, að 3. umr. verði strax að lokinni 2. umr., svo að Nd. geti fengið málið til afgreiðslu, og að allshn. þessarar deildar hefði þá samvinnu við allshn. Nd. um málið.