14.06.1941
Efri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (2779)

168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna

Forseti (EÁrna) :

Ég vil taka það fram, áður en umr. hefjast, að þess hefur verið óskað, að málinu yrði hraðað sem mest gegnum 1. umr.

En í því sambandi skal ég lýsa yfir því, að ég mun leyfa hv. dm. að tala um frv. almennt við 2. umr., ef þeim finnst frelsi sitt um of takmarkað af þessari ósk.