07.06.1941
Neðri deild: 73. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í C-deild Alþingistíðinda. (2943)

57. mál, bygging sjómannaskóla

Finnur Jónsson:

Ég vakti máls á því við hæstv. forseta fyrir nokkrum dögum, að ég óskaði eftir því, að frv. til 1. um sjómannaskóla, sem hefur gengið gegnum þrjár umr. í hv. Ed. og tvær umr. í þessari hv. d., yrði tekið á dagskrá til afgreiðslu. Ég vil hér með ítreka þetta við hæstv. forseta og leggja fram áskorun frá 6 þm. um, að þetta mál verði tekið til umr. og afgreiðslu á næsta fundi, sem haldinn verður hér í þessari hv. d.