21.02.1941
Efri deild: 5. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í C-deild Alþingistíðinda. (3021)
14. mál, frestun ágildistöku bifreiðalaga og umferðarlaga
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Frv. þetta er samhljóða bráðabirgðal. þeim, sem stj. gaf út til þess að fresta gildistöku bifreiðal. nr. 75 7. maí 1940, og umferðarlaganna frá 30. maí síðastl., en eins og kunnugt er áttu lög þessi að ganga í gildi um áramót síðastl., og breytingar á umferðarreglum að hefjast þá þegar samkv. þeim. Eins og hv. dm. mun eflaust reka minni til, var gert ráð fyrir að halda námskeið í vetur fyrir bifreiðastjóra til þess að kenna þeim og æfa þá við hinar nýju umferðarreglur, svo að breyting sú á allri umferð, sem ákvæði hinna nýju bifreiðal, áttu að skapa, yrði síður til þess að valda slysum. Námskeið þetta átti að vera um miðjan veturinn, þegar umferðin væri sem minnst. Áttu bílstjórarnir því að geta verið orðnir sæmilega æfðir í hinum nýju umferðarreglum með vorinu, er umferð öll fór að aukast. En nú er eins og kunnugt er hér brezkt herlið, og eru bifreiðastjórar þess vanir sömu umferðarreglum og gilt hafa hjá okkur til þessa. Umferð hinna brezku bifreiða er þegar miklu meiri en hinna íslenzku. Stj. þótti því ófært að breyta nú umferðarreglunum sakir slysahættu, sem af því gæti stafað, og sá því ekki annað fært en gefa út bráðabirgðal. um að fresta gildistöku bifreiða- og umferðarl. af þessum ástæðum.
Að umr. lokinni óska ég málinu vísað til 2. umr. og samgmn.