28.03.1941
Efri deild: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í B-deild Alþingistíðinda. (314)
56. mál, verðlagsuppót á laun embættis- og starfsmanna ríkisins
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti! Það eru 2 atriði, sem breytzt hafa í Nd., sem mig langar til að fá nánari útskýringu á, og ég geri ráð fyrir, að sú nefnd, sem hafði málið hér til meðferðar, hafi athugað og geti gefið upplýsingar um.
Fyrri brtt, er um heimild til að greiða uppbót á laun úr lífeyrissjóði ljósmæðra og barnakennara, og langar mig til að fá útskýringu á, hvort ætlazt sé til, að sú upphæð, sem þannig yrði greidd, yrði endurgreidd úr ríkissjóði.
Nú mun lífeyrissjóður embættismanna vera fullar 2 millj. kr., og reynslan hefur sýnt, að í hann kemur meira en , úr honum greiðist. Hins vegar koma ekki allir embættismenn undir hann, og er hann því enn ekki kominn upp í þau útgjöld, sem hann kann að hafa seinna meir.
Mig langaði til að vita, hvort athugað hafi verið, hvort þörf sé á, að þessi sjóður og lífeyrissjóður barnakennara, sem er víst fullar 800 þús. kr., fái það endurgreitt úr ríkissjóði, og mundu þeir ekki geta staðið undir þessu, án . þess að fá það endurgreitt úr ríkissjóði? Hafi málið ekki verið fullrannsakað á þessum grundvelli, þá vildi ég mælast til þess, að það yrði gert, þar sem lögunum er ætlað að falla úr gildi 1. júlí 1942, og þá kemur til næsta þings að framlengja þau. Fyrir þann tíma þarf að rannsaka, hvort þessir sjóðir geta ekki staðið undir þessu. Ég álít, að þeir muni geta það.
Hitt er annað, að tekin hefur verið upp í 7. grein svolítil breyting. Þessi breyt. er þannig, að uppbótin greiðist mánaðarlega með laununum og miðast við vísitölu næsta mán. á undan. Mér virðist, að með þessu hafi farið líkt fyrir n. og í fyrra, að í lögin sé komið ákvæði, sem gerir þau lítt framkvæmanleg. Mér er ekki ljóst, hvernig á að framkvæma þetta með mann, sem byrjar að fá laun, og hvernig um áramót. Ég held, að þetta hafi alls ekki mátt falla úr greininni og þetta þurfi nánari athugunar við. Mér er ekki ljóst, hvernig framkvæma á greinina.