03.04.1941
Neðri deild: 30. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í C-deild Alþingistíðinda. (3165)

72. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Flm. (Pálmi Hannesson) :

Flestir okkar þm., sem umboð höfum fyrir kjördæmi í Norðlendingafjórðungi og sæti eigum í þessari hv. deild, höfum komið okkur saman um að flytja frv. þetta. Mál það, sem um ræðir í frv., hefur oft legið fyrir Alþingi áður í ýmsum myndum og hefur oft um það verið deilt. En nú standa sakir þannig, að meiri lífshagsmunir fyrir fjölda manna velta á því nú en oftast áður. Og því er það tekið upp að þessu sinni.

Mál þetta liggur ljóst fyrir, og sé ég því ekki ástæðu til að fjölyrða um það frekar, en óska, að því verði vísað til 2. umr. og sjútvn., að umr. þessari lokinni.