14.05.1941
Neðri deild: 59. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (3479)

125. mál, vegavinna

*Finnur Jónsson:

Það voru aðeins örfá orð í sambandi við þetta mál. Það getur vel verið, að þessi till. eigi við víða á landinu, en þó getur hæglega hagað svo til, að nauðsyn beri til þess að halda áfram vegavinnunni yfir sumarið, og víða í kaupstöðum landsins er svo ástatt, að menn eiga ekki hægt með að fara að heiman til vinnu. Ég vil því spyrja hæstv. atvmrh., hvort hann mundi ekki taka tillit til þess, þar sem svo stendur á, jafnvel þó að till. verði samþ., að í kauptúnunum er lítið um vinnu á sumrin og menn eiga þar oft ekki heimangengt.