21.05.1941
Neðri deild: 64. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í D-deild Alþingistíðinda. (3562)
152. mál, kirkjubyggingar í Skálholti og á Þingvöllum
Ísleifur Högnason:
Ég ætla ekki að fara út í neinar trúarbragðadeilur, en ég skal viðurkenna, að ég tilheyri hvorki vestrænum né austrænum trúarbrögðum, en hv. síðasti ræðumaður telst til austrænna trúarbragða, þar sem hann mun þykjast maður kristinn. Ég efast mjög um, að kirkjan hafi nokkurn tíma verið til blessunar hér á landi. Á henni finnast ýmsir svartir blettir gegnum aldirnar. Hún hefur kúgað bændur og landsmenn, og ef út í þá sálma er farið, þá er ýmislegt hægt að tína þar til.
Í minni ræðu lagði ég áherzlu á, að réttara mundi að endurreisa eitthvað af kotunum í grennd við hina merku sögustaði eða byggja yfir húsnæðislaust fólk í kaupstöðunum, — því var ekki svarað, enda þótt það sé mál, sem alla varðar nú í svipinn. — Skilningur manna á húsnæðisvandræðum virðist vera mjög þverrandi hér á hv. Alþingi. — Hér hefur þó á sínum tíma verið stofnaður byggingar- og landnámssjóður, en nú er farið að tala um, og það í fullri alvöru, að reisa kirkjur, þótt fólk svo hundruðum skiptir hafi ekki þak yfir höfuðið. Tilgangurinn mun sá að hressa upp á hugi hinna húsnæðislausu. Eftir er aðeins að vita, hvort þeir gera sér það að góðu. Ég fyrir mitt leyti geri það ekki.