21.05.1941
Neðri deild: 64. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í D-deild Alþingistíðinda. (3565)

152. mál, kirkjubyggingar í Skálholti og á Þingvöllum

*Gísli Guðmundsson:

Ég vil aðeins taka fram, að það er hægara að fá einhverju á orkað í því, að biskupssetrið verði flutt í sambandi við þessa till. til þál. heldur en að það sé í sérstakri till., og þess vegna vil ég, að þessum málum sé slengt saman. Því að ef þetta verður ekki gert núna, þá uggir mig; að það verði ekki eins auðvelt, síðar.