28.03.1941
Neðri deild: 25. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í B-deild Alþingistíðinda. (366)

3. mál, tollheimta og tolleftirlit

Ísleifur Högnason:

Það er rétt, að þessi orð standa í nál. Ed. En það er engu að síður rétt, að fjhn. þessarar deildar hefur afgr. málið þannig, að það er algerlega ósæmilegt fyrir þingið að láta slíkt frá sér fara.