16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í D-deild Alþingistíðinda. (3661)
138. mál, kaup á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands h/f
*Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Ég skal ekki vera langorður um þetta mál, því að mér hefur skilizt á hæstv. forseta, að hann hafi mikinn áhuga fyrir því að ljúka störfum þessa fundar fyrir kaffihlé. Ég vil aðeins taka það fram, að fyrir mitt leyti er ég með því, að dagskrártill. minni hl. fjvn. verði samþ. og þetta mál athugað nánar. Verði þessi bréf keypt, þá er hætt við því, að fast verði gengið að öðrum aðilum, þeim, sem hafa lagt fram nokkurt fé til kaupa á verðbréfum í Útvegsbankanum. Ég vil einnig benda á það, að allir þeir, sem lögðu fram fé, þegar Útvegsbankinn var stofnaður, gerðu það af fúsum og frjálsum vilja. Enn fremur var sérstaklega samið um stórar skuldir, sem bankinn stóð í við erlenda aðila. Það var samið við þá um það, að það fé skyldi vera áhættufé bankans. Þess vegna er það frá mínu sjónarmiði varhugavert að raska þeim grundvelli, sem lagður var, þegar bankinn var stofnaður, — það gætu orðið víðtækari afleiðingar af þessari röskun en menn í fljótu bragði gera sér grein fyrir.
Ég er þeirrar skoðunar, að þetta mál þurfi nánari athugunar áður en þingið tekur afstöðu til þess. Ég er því meðmæltur till. minni hl. fjvn. Hins vegar mun ég ekki taka þátt í almennum umr. um málið, — ég vildi aðeins, að þm. heyrðu þessa skoðun.