15.04.1941
Neðri deild: 35. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (419)
75. mál, leigutaka á húsnæði í sveitum og kauptúnum o.fl.
*Bjarni Bjarnason:
Ég ætla aðeins að segja örfá orð um þetta mál, áður en því verður vísað til n. Ég sé, að það hefur tekið lítils háttar breytingum í Ed., sem sé, að bætt hefur verið inn í 1. gr. frv.: „og annað nothæft húsnæði í sveitum eða kauptúnum“. Vildi ég því beina því til þeirrar n., sem þetta mál fær til meðferðar, hvort ekki væri ástæða til eða jafnvel vissara að nefna beinlínis þá staði, eins og t. d. sumarbústaði, sem eru það stórir, að hægt verði að bæta þar við nokkrum börnum. Enn fremur fyndist mér, að mætti athuga, hvort ekki væri hægt að koma þar fyrir 1–3 konum með eitthvað af börnum, þrátt fyrir það að fólkið, sem bústaðina á, nyti þeirra einnig. Ég sé að vísu, að þetta er opið eftir orðalaginu að dæma, en held þó, að rétt sé að athuga, hvort ekki er réttara að geta um það, að í þessu fælust einnig sumarbústaðir.
Ég ætla ekki að ræða um nauðsyn þessa máls, geri ráð fyrir, að allir séu sammála um, að nauðsynlegt sé að greiða fyrir því, að sem flest börn komist burt úr bænum yfir sumartímann, að minnsta kosti nú, þar sem nokkur hætta er á, að loftárás verði gerð á bæinn. En ég geri ráð fyrir, að það sé ástæða til að athuga, hvort ekki væri rétt að undanþiggja eitthvað af skólahúsum eða stöðum, þar sem fólk leitar sér sumardvalar, það fólk, sem ekki hefur komið sér upp sumarbústað og notar þessa staði til að hvíla sig í sumarfríinu. Það er ekki beint hlutverk Alþingis að ákveða þetta, en mér fyndist ekki úr vegi að láta það koma til umræðu, hvernig Alþingi lítur á þetta atriði, — hvort allir þeir, sem hafa komið sér upp sumarbústað, eigi að hafa þá óáreittir, þó að þeir séu svo stórir, að nægja mundu fyrir fleiri en fjölskylduna, en hins vegar séu teknir allir þeir staðir, sem annað fólk leitar á í sínu sumarfríi. Ég tel rétt að athuga, hvort sumarbústaðir geti ekki bætt nokkrum börnum við sig og álít ekki rétt að undanþiggja þá staði.
Það er einnig annað atriði, sem ég vildi geta lítils háttar, — hvort ekki væri varhugavert að gefa heimild til að taka fundahús í sveitum sem dvalarstaði fyrir börn yfir sumarið. Nú vita allir, að kosningar eru í vændum, og þá vaknar spurningin: Hvar á að halda fundi á komandi vori, ef svo færi, að öll fundahús í nágrenni Reykjavíkur og kaupstaða yfirleitt yrðu tekin fyrir börnin? Þetta gæti verið bagalegt, og vildi ég því einnig, að þetta atriði yrði athugað.
Ég ætla þá ekki að segja meira um þetta mál á þessu stigi, en taldi rétt að beina þessu til þeirrar n., sem tekur við málinu.