18.04.1941
Neðri deild: 40. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (454)

75. mál, leigutaka á húsnæði í sveitum og kauptúnum o.fl.

*Frsm. (Garðar Þorsteinsson) :

Ég sé það af orðum hv. 1. þm. Rang., að það hefur ekki vakað fyrir honum að fá þá breyt. samþ., sem hann bar fram, heldur að n. bætti ráð sitt. En n. bætti ráð sitt á allt öðru sviði heldur en því, sem sá hv. þm. vildi í dag, að hún gerði. En ef hann getur fallið frá sinni brtt. bara af því, að þessir syndugu menn í allshn. sneru frá villu síns vegar og til betri vegar, þá getum við báðir verið ánægðir.