08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
15. mál, hegningarlög
Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Ég ætla ekki í raun og veru að svara þeirri fyrirspurn, sem kom fram hjá síðasta hv. ræðumanni, þar sem það fellur ekki sérstaklega undir minn verkahring í ríkisstj. En ég vildi aðeins benda þessum hv. þm. á það, sem hann veit alveg eins vel og ég, af því að við erum báðir löglærðir, að þetta ákvæði, sem hér er um að ræða, um að ráðast á erlenda fulltrúa eða erlenda þjóðhöfðingja, hefur verið í 1. frá því árið 1869 og allt til þessa dags. Það var í gömlu hegningarl. okkar og nýju hegningarl., sem sett voru í fyrra eða hitteðfyrra. En í þessu frv., sem hér liggur fyrir, eru aðeins sett nokkuð skýrari og fyllri ákvæði heldur en áður hafa verið í l. Á síðustu árum veit ég ekki til þess, að þessum lagagr., sem sérstaklega vita að árásum á erlenda þjóðhöfðingja, hafi verið beitt nema einu sinni, er það var gert út af greinafl., sem ritaður var í Alþýðublaðið af Þórbergi Þórðarsyni, þegar nefndur maður var dæmdur í sekt, bæði af undirrétti og í hæstarétti. En þessi bráðabirgðal. gefa ekki tilefni til þess að varpa þessari spurningu fram, því að þau hafa ekkert sérstaklega fært út kvíarnar um það atriði, sem hv. þm. var að spyrja út af, hvers vegna ríkisstj. hefði ekki höfðað mál út af broti gegn gr. um erlenda fulltrúa og erlenda þjóðhöfðingja.