08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í B-deild Alþingistíðinda. (588)

15. mál, hegningarlög

Frsm. (Bergur Jónsson) :

Ég vil aðeins geta þess, að það var hv. 7. landsk., sem gaf mér tilefni til þess að benda á þessa gr. stjskr., vegna þess að hann fór að tala um þær aðgerðir, sem mundi leiða af þessari breyt. En ég hélt mér aftur á móti við þær breyt., sem verið er að gera á hinum almennu hegningarl., eins og líka sjálfsagt var fyrir frsm. þessa frv.