20.02.1941
Neðri deild: 4. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í B-deild Alþingistíðinda. (596)
6. mál, happadrætti
Fjmrh:
(Jakob Möller) : Þetta frv. fer eins og hið næsta á undan (um einkasölu ríkisins á tóbaki) fram á staðfesting bráðabirgðal., sem gefa varð út nú fyrir skemmstu, til þess að starfsemi happdrættisins á yfirstandandi ári gæti gefið háskólanum eins miklar tekjur og áður, þótt kostnaður þess yxi með dýrtíðinni. Stjórn háskólans taldi, að ekki yrði komizt hjá að hækka verð happdrættismiða, og féllst ríkisstj. á það. En jafnframt voru möguleikar til vinninga auknir stórum, svo að viðskiptamenn happdrættisins hafa yfirleitt ekki fundið ástæðu til að kvarta yfir breyt. Hinn aukni skattur er þarna greiddur af frjálsum vilja, og virðist lítið við það að athuga, þar sem peningaráð manna eru með bezta móti. Ég skal ekki fjölyrða um málið, nema tilefni gefist, og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og fjhn.