16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1275 í B-deild Alþingistíðinda. (63)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Forseti (HG) :

Það hafa nokkrir hv. þm. kvatt sér hljóðs. Þetta mál er utan dagskrár, og mörg mál eru á dagskrá. Ég vil því mjög biðja hv. þm. að stytta mál sitt. Það er ekki gert ráð fyrir almennum umr. um mál, þegar mál eru tekin fyrir utan dagskrár. Ef ræður verða haldnar langar um málið, má því búast við, að ræðutími verði takmarkaður.