06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í B-deild Alþingistíðinda. (646)

61. mál, gjaldeyrisvarasjóður og eftirlit með erlendum lántökum

Þorsteinn Briem:

Herra forseti! Ég hef flutt þessa brtt. á þskj. 334, af því að frá mínu sjónarmiði eru þessi l. gagnslítil, a. m. k. nema brtt. gangi fram. En vegna tilmæla ríkisstj. í þessu sambandi, vildi ég eigi að síður óska þess, að hæstv. viðskmrh. skýrði nánar, hvað fyrir honum og ríkisstj. vekti í þessu sambandi, og ætla ég ekki að tala fleiri orð fyrir brtt. fyrr en hæstv. viðskmrh. hefur gefið skýringu.