14.05.1941
Neðri deild: 59. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (746)

19. mál, óskilgetin börn

Garðar Þorsteinsson:

Ég vil taka fram, að þessi till. er shlj. því, sem áður hefur komið fram í nál. allshn. Ég hef þá skoðun, að meðlögin eigi að hækka í samræmi við dýrtíðina, en ekki meira, og verður því að miða dýrtíðaruppbótina við meðlögin eins og þau voru áður en þau voru hækkuð.