23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (78)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Finnur Jónsson:

Þann 15. þ. m. var samþykkt hér til 3. umr. frv. til l. um sjómannaskóla, sem hingað kom frá hv. Ed. Það var einróma álit sjútvn., að þetta frv. ætti fram að ganga á þessu þingi, og voru allir sammála um það í Ed., og veit ég ekki annað en að fullt samkomulag sé um þetta mál. Vildi ég því eindregið beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann taki þetta mál á dagskrá á næsta fundi.