09.07.1941
Sameinað þing: 1. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (47)
Þingmaður leggur niður þingmennsku
Aldursforseti (IngP):
Áður en tekið verður til fundarstarfa, vil ég tilkynna, að forseta sameinaðs Alþingis hefur borizt svo látandi bréf frá þm. Norður-Ísfirðinga, Vilmundi Jónssyni, dags. 1. þ.m.:
„Herra forseti ! Ég leyfi mér hér með að tilkynna yður, að ég hef ákveðið að hætta þingstörfum og leggja niður þingmennsku. Æski ég, að nafn mitt verði nú þegar numið burt af skrá þingmanna og aðrar ráðstafanir gerðar í þessu sambandi, sem nauðsynlegar kunna að vera.
Vilmundur Jónsson.
Til forseta sameinaðs Alþingis, Reykjavík.“
Forseti hefur tilkynnt þetta dómsmálaráðuneytinu með skírskotun til 135. gr. kosningalaganna.