09.07.1941
Sameinað þing: 1. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

Kosning forseta og skrifara

Kosning forseta og skrifara. Aldursforseti (IngP):

Ég vil gera það að tillögu minni, að ekki verði nú látin fram fara skrifleg kosning forseta sameinaðs Alþingis, heldur ákveðið, að forseti skuli vera hinn sami og á síðasta þingi, en til þess þarf afbrigði frá þingsköpum. Ég vil spyrja hæstv. stjórn, hvort hún leyfi þau afbrigði. — Hæstv. stjórn heimilar afbrigðin, og mun ég þá leita um þau atkvæða þingsins.