09.07.1941
Sameinað þing: 1. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (50)

Kosning forseta og skrifara

Forseti (HG):

Ég legg til, að sá háttur verði einnig hafður um kosningu annarra embættismanna sameinaðs þings, að ákveðið verði, að þeir skuli vera hinir sömu sem á síðasta þingi. Til þess þarf afbrigði frá þingsköpum, og vil ég spyrja hæstv. stjórn, hvort hún leyfi þau afbrigði. — Afbrigðin eru leyfð, og vil ég þá biðja hv. þm. að greiða um þau atkv.