09.07.1941
Neðri deild: 1. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

Kosning forseta og skrifara

Forseti (JörB):

Ég geri það að tillögu minni, að ákveðið verði á sama hátt, að báðir varaforsetar og skrifarar deildarinnar verði hinir sömu sem á síðasta þingi. Til þess að sú tillaga geti komið til meðferðar, þarf afbrigði frá þingsköpum, og vil ég spyrja hæstv. stjórn, hvort hún leyfi þau afbrigði. — Afbrigðin eru leyfð, og verður þá borið undir atkvæði deildarmanna, hvort þeir samþykki afbrigðin.