14.10.1941
Efri deild: 1. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Kosning forseta og skrifara

Forseti (EÁrna) :

Ég geri það að tillögu minni, að kosning annarra embættismanna deildarinnar fari fram með sama hætti sem forsetakosningin, þannig að ákveðið verði, að varaforsetar og skrifarar skuli vera hinir sömu sem á síðasta þingi. Ég vil spyrja hæstv. stjórn, hvort hún leyfi þau afbrigði frá þingsköpum, að tillaga þessi megi koma til atkvæða. — Afbrigðin eru leyfð, og ber ég þá undir deildina, hvort hún samþykki þau.