15.10.1941
Efri deild: 2. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (19)

Kosning fastanefnda

Forseti (EÁrna) :

Ég geri það að tillögu minni, að fastanefndir Ed. verði skipaðar sömu mönnum og á síðasta aðalþingi. En til þess að bera megi þá till. undir atkv., verður að veita afbrigði frá þingsköpum, og vil ég spyrja hæstv. stjórn, hvort hún leyfi afbrigðin. — Hæstv. stj. leyfir

afbrigðin, og ber ég þá undir deildina, hvort hún vill fallast á að samþykkja þau.