19.11.1941
Efri deild: 21. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í B-deild Alþingistíðinda. (278)
19. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Ég get látið mér vel líka það, sem hv. l. þm. Reykv. sagði til málsbóta frumhlaupi sínu í fyrri ræðu sinni, því þó hann segði, að þetta frv., eins og það kæmi frá hv. Nd., væri jafnógreindarlegt og fornritafélagið væri komið inn á þing, þá gæti hún látið sér það ámæli vel lynda, því að ég hygg, að þeir menn séu ekki taldir ógreindari en svo, að Nd. geti látið sér lynda það að vera líkt við þá. Og mér þykir gott, ef þessi hv. d. getur borið mjög af í framtíðinni.
Það er annars undarlegt, að þessi hv. þm. skuli enn vera að tala um efni frv., sem ekki er fyrir hendi. Hann veit bersýnilega ekki enn þá, hvað þetta frv. felur í sér. Hann sagði að vísu, að það væri ekki sér að kenna, þar eð hann hefði ekki haft tíma til að lesa frv., en mér finnst hann hefði þá getað geymt að tala um það, þangað til þessi umr. var hjá liðin. Þá hefði honum getað veitzt tími til að fullvissa sig um, hvað í frv. fælist. Síðan hefðum við getað dæmt um það, hver ástæða var til að byrgja brunninn áður en barnið dytti ofan í. Hann vill endilega vera á eftir. Hann vill, að misjafnlega vandaðir bókaútgefendur elti afvegaleiddan smekk almennings með því að elta hann alltaf niður á við. En það er einmitt þetta, sem hv. Nd. hefur viljað fyrirbyggja.