15.10.1941
Neðri deild: 2. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (28)

Kosning fastanefnda

Skúli Guðmundsson:

Ég vildi aðeins gera þá athugasemd við nefndarmannatal hæstv. forseta, að þar sem þess var getið, að ég hafi verið í sjútvn. á síðasta þingi, var það að vísu svo í upphafi, en snemma á þinginu fór ég úr þeirri nefnd, en hv. þm. A.-Sk., Jón Ívarsson, tók þar sæti. Vænti ég þess, að þetta verði lagfært og hann, en ekki ég, taki sæti í nefndinni.