27.10.1941
Neðri deild: 6. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

Fyrirspurnir um stjórnarframkvæmdir o.fl.

Utanríkisrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Mér þótti leitt að sjá frásögn Morgunblaðsins af hinum lokaða fundi, því að það er vissulega alveg óviðeigandi og gagnstætt því, sem til er ætlazt, að birta opinberlega frásagnir af lokuðum fundum þingsins. Hins vegar finnst mér slíkt vera til viðvörunar, en ekki til eftirbreytni.