10.11.1941
Sameinað þing: 11. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í D-deild Alþingistíðinda. (497)
13. mál, greiðsla ríkislána í Bretlandi
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Ég get skýrt frá því, að af hálfu ríkisstj. hefur verið gert allt, sem unnt hefur verið, til þess að koma því í kring, að ríkisskuldirnar yrðu greiddar að fullu nú þegar. Í gegnum viðskiptan. hefur verið leitað eftir því, og síðan hefur sendifulltrúanum í London verði falið að fylgjast með málinu. En af þessu hefur enginn árangur fengizt. Ég get einnig skýrt frá því, að þetta mál hefur verið tekið til athugunar í sambandi við samninga milli Bandaríkjanna, Englands og Íslands, en ekkert er endanlega útkljáð um það. Ég tel engan vafa á því, að haldið verði áfram þessum tilraunum eins hér eftir sem hingað til, því að Það væri vissulega mjög hagkvæmt að breyta þessum lánum í innlend lán, enda þótt vextir af þeim séu ekki eins háir eins og hv. þm. tiltók.