10.11.1941
Sameinað þing: 11. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (533)
9. mál, trúnaðarbrot við Alþingi
Finnur Jónsson:
Ég vil aðeins taka það fram, að ég sat ekki á þingi árið 1932, og er þess vegna gefið, að mér er algerlega ókunnugt um, hvaðan slíkt hefur borizt, sem hæstv. atvmrh. var að tala um. Ég get því ekki að neinu leyti leyst úr spurningu hæstv. atvmrh. (Atvmrh.: Frekar þó en ég úr spurningu hv. þm. Ísaf. um það, hvaðan Morgunblaðið fékk sínar upplýsingar.) Það skyldi nú vera.