20.11.1941
Sameinað þing: 15. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í B-deild Alþingistíðinda. (54)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Jónas Jónsson:
Ég var í nokkrum vafa um, hvernig ég ætti að greiða atkv. um þessa till. hv. 1. þm. Árn., en eftir ræðu hv. þm. Ísaf. er ég sannfærður um réttmæti hennar. Það segi ég sem flokksmaður, þegar ég sé, að hér á að vekja upp nýtt „kollumál“, að ég vil kveða það niður. Framsfl. varð fyrir því óvænta happi á sínum tíma að græða stórkostlega á kollumálinu, og ég sé enga ástæðu til að gefa nú öðrum flokki nýtt „kollumál“ til að græða á og segi já.