13.10.1941
Sameinað þing: 1. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (569)

Ríkisstjóri setur þingið

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Árni Jónsson, 9. landsk. þm.

2. Bergur. Jónsson, þm. Barð.

3. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

4. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

5. Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafnf.

6. Brynjólfur Bjarnason, 1. landsk. þm.

7. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.

8. Einar Olgeirsson, 4. þm. Reykv.

9. Eiríkur Einarsson, 8. landsk. þm.

10. Emil Jónsson, 6. landsk, þm.

11. Erlendur Þorsteinsson, 10. landsk. þm. 12. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.

13. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

14. Garðar Þorsteinsson, 7. landsk. þm. 15. Gísli Sveinsson, þm. V.-Sk.

16. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf. 17. Helgi Jónasson, 2. þm. Rang.

18. Hermann Jónasson, þm. Str.

19. Héðinn Valdimarsson, 3. þm. Reykv. 20. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M.

21. Jakob Möller, 2. þm. Reykv.

22. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

23. Jóhann G. Möller, 6. þm. Reykv.

24. Jón Ívarsson, þm. A.-Sk.

25. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

26. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.

27. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

28. Magnús Gíslason, 11. landsk. þm.

29. Magnús Jónsson, 1. þm. Reykv.

30. Ólafur Thors, þm. G.-K.

31. Páll Hermannsson, 2. þm. N.-M.

32. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N.-M.

33. Pálmi Hannesson, 1. þm. Skagf.

34. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

35. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

36. Sigurður Kristjánsson, 5. þm. Reykv. 37. Sigurjón Á. Ólafsson, 2. landsk. þm. 38. Skúli Guðmundsson, þm. V.-Húnv. 39. Stefán Stefánsson, 3. landsk. þm.

40. Steingrímur Steinþórsson, 2. þm. Skagf.

41. Sveinbjörn Högnason, 1. þm. Rang.

42. Þorsteinn Briem, þm. Dal.

43. Þorsteinn Þorsteinsson, 5. landsk. þm. Voru framantaldir þingmenn allir á fundi nema Bergur Jónsson, þm. Barð., sem hafði boðað veikindaforföll.

Ókomnir voru til þings :

1. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

2. Bjarni Bjarnason, 2. þm. Árn.

3. Gísli Guðmundsson, þm. N.-Þ.

4. Ísleifur Högnason, 4. landsk. þm.

5. Thor Thors, þm. Snæf.

Ríkisstjóri setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér í sæti, kom ríkisstjóri inn í salinn og gekk til ræðustóls.

Ríkisstjóri (Sveinn Björnsson) : Í ríkisráði 9. þ. m. var gefið út svo látandi opið bréf :

„Ríkisstjóri Íslands

gerir kunnugt: að ég samkvæmt stjórnarskrá konungsríkisins Íslands 18. maí 1920 hef ákveðið, að Alþingi komi saman til aukafundar mánudaginn 13. október 1941, kl. 14.

Um leið og ég birti þetta, er öllum þeim, sem sæti eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett, eftir að guðsþjónusta hefur farið fram í dómkirkjunni.

Gert í Reykjavík þ. 9. október 1941. Sveinn Björnsson.

(L. S.)

Hermann Jónasson.

Opið bréf, er stefnir saman Alþingi til aukafundar mánudaginn 13. október 1941.“

Samkvæmt því, er ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett. Er þetta 58. löggjafarþing og 14. aukaþing í röðinni, en 73. samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Ég vil biðja alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

(Þingmenn risu úr sætum sínum, og aldurs

forseti, 2. þm. S.-M. (IngP) mælti: „Lifi Ísland!“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.)

Ríkisstjóri kvaddi nú elzta þingmanninn, Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M., til þess að stýra fundi þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings. Gekk ríkisstjóri síðan út úr salnum.

Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og lýsti yfir því, að fundinum væri frestað til næsta dags.

Þriðjudaginn 14. okt., kl. 2 miðdegis, var fundur settur á ný.