16.02.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Ríkisstjóri setur þingið

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Árni Jónsson, 9. landsk. þm.

2. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

3. Bergur Jónsson, þm. Barð.

4. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

5. Bjarni Bjarnason, 2. þm. Árn.

6. Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafnf.

7. Brynjólfur Bjarnason, 1. Landsk. þm.

8. Eiríkur Einarsson, 8. landsk. þm.

9. Einar Olgeirsson, 4. þm. Reykv.

10. Emil Jónsson, 6. landsk. þm.

11. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.

12. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

13. Garðar Þorsteinsson, 7. landsk. þm.

14. Gísli Guðmundsson, þm. N.-Þ.

15. Gísli Sveinsson, þm. V.-Sk.

16. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf.

17. Helgi Jónasson, 2. þm. Rang.

18. Hermann Jónasson, þm. Str.

19. Héðinn Valdimarsson, 3. þm. Reykv.

20. Jakob Möller, 2. þm. Reykv.

21. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

22. Jóhann G. Möller, 6. þm. Reykv.

23. Jón Pálmason, þm. a.-Húnv.

24. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.

25. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

26. Magnús Gíslason, 11. landsk. þm.

27. Magnús Jónsson, 1. þm. Reykv.

28. Ólafur Thors, þm. G.-K.

29. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N.-M.

30. Pálmi Hannesson, 1. þm. Skagf.

31. Pétur Ottesen; þm. Borgf.

32. Sigurður Kristjánsson, 5. þm. Reykv.

33. Sigurjón Á. Ólafsson, 2. landsk. þm.

34. Skúli Guðmundsson, þm. V.-Húnv.

35. Steingrímur Steinþórsson, 2. þm. Skagf.

36. Sveinbjörn Högnason, 1. þm. Rang.

37. Þorsteinn Briem, þm. Dal.

38. Þorsteinn Þorsteinsson, 5. landsk. þm.

Voru framantaldir þingmenn allir á fundi, nema 6. þm. Reykv., sem boðað hafði veikindaforföll. En ókomnir voru til þings þessir alþingismenn:

1. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

2. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.

3. Erlendur Þorsteinsson, 10. landsk. þm )

4. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M.

5. Ísleifur Högnason, 4. landsk. þm.

6. Jón Ívarsson, þm. a.-Sk.

7. Páll Hermannsson, 2. þm. N.-M. ,

8. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

9. Stefán Stefánsson, 3. landsk. þm.

Ríkisstjóri setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, kom ríkisstjóri, Sveinn Björnsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls. Las hann upp opið bréf, er stefnir saman Alþingi til reglulegs fundar mánudaginn 16. febr. 1942, dags. 4. febr., svo hljóðandi:

Ríkisstjóri Íslands

gerir kunnugt: að ég samkvæmt stjórnarskrá hins íslenzka ríkis frá 18. maí 1920 hef ákveðið, að Alþingi skuli koma saman til reglulegs fundar mánudaginn 16. febrúar 1942.

Um leið og ég birti þetta, er öllum þeim, er setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan da;g til Reykjavíkur, og mun ég þá setja Alþingi, eftir að guðsþjónusta hefur farið fram í dómkirkjunni.

Gert á Bessastöðum 4. febrúar 1942.

Sveinn Björnsson. (L. S.)

Hermann Jónasson.

Samkvæmt þessu opna bréfi lýsti ríkisstjóri því næst yfir, að Alþingi væri sett. Síðan mælti