22.05.1942
Sameinað þing: 20. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í D-deild Alþingistíðinda. (1243)

149. mál, lífeyrissjóður embættismanna og lífeyrissjóður barnakennara

Haraldur Guðmundsson:

Ég tel það rétt hjá hv. þm. V.-Húnv., að taka beri til athugunar, hvort ekki beri að fjölga lífeyrissjóðunum, eða réttara sagt skipta þeim í fleiri deildir.

Ég er að vissu leyti sammála flm. þessarar till. til þál. um, að endurskoða beri þessi l., en ég tel það ekki rétt strax, því að verðgildi peninganna getur breytzt, og væri því mikill vandi að reikna út ýmislegt í sambandi við þetta.