26.02.1942
Neðri deild: 6. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (127)

13. mál, skemmtanaskattur

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Vegna þess að síðasta þingi láðist að framlengja þau ákvæði, sem hér ræðir um, þótti ríkisstjórninni nauðsyn að gera það með bráðabirgðalögum, og virtist henni einsætt, að það mundi vera jafnt vilji Alþingis sem hennar.

Ég óska þess, að málinu verði vísað til 2. umr. og nefndar.