29.04.1942
Neðri deild: 44. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)
31. mál, til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar
*Eiríkur Einarsson:
Ég vil aðeins taka það fram, að mér finnst óþarft fyrir hv. formann og frsm. iðnn. að furða sig á því, þótt ég reyndist hér nokkuð veikur fyrir þeim rökum, sem fram eru komin um það, að æskilegra væri að láta sérleyfið ekki falla niður skilyrðislaust eftir 5 ár, ef ekki verður hægt að framkvæma mál þetta. á þeim tíma. Og það vil ég taka fram, sem hv. meðnm. mínir munu kannast við, að í n. reyndi ég eins og ég gat að teygja afgreiðslu málsins í þá átt að hafa sérleyfistímann sem lengstan og helzt að hafa hann ekki tímatakmarkaðan. Og þegar svo rök komu fram um það, að það væri óhentugt að hafa hann tímatakmarkaðan, þá var það ekki annað, sem ég hef tekið afstöðu um, sem sumum kann að virðast í fljótu bragði önnur afstaða en ég hafði í n., — en þetta atriði, og það var eftir þeirri stefnu, sem ég fylgdi fram í iðnn., að þessi sérleyfistími ætti að vera sem lengstur. Vil ég þó ekki gera ágreining um slíkt.
Um hitt atriðið hef ég enga ástæðu til að ræða frekar, en það var harla lítið rætt um það atriði í iðnn.