07.04.1942
Efri deild: 27. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)

55. mál, lækningaleyfi

Forseti (EÁrna):

Ég vil vekja athygli hv. þdm. á því, að þetta mál, sem síðasti ræðum. gerði að umtalsefni, er ekki til umr. nú, og ég vil biðja hv. þm. að halda sig eingöngu við efni þess frv., sem nú er til umr., þ.e. 3. mál dagskrárinnar. Það er þegar lokið umr. um 4. málið. En þegar að því máli kemur, verð ég að taka ákvörðun um þær brtt., sem fyrir liggja um það mál.