11.05.1942
Neðri deild: 55. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

55. mál, lækningaleyfi

Forseti (JörB):

Hvorugur hv. flm. brtt. á þskj. 359 er viðstaddur. Tel ég því rétt að fresta þeim til 3. umr. (EOl: Er ekki bezt að fresta umr.?) Það yrði til að tefja málið, en mér skilst, að vilji sé fyrir, að það gangi fram. (EOl: Það er ákveðinn vilji sumra, að það gangi ekki fram:) Ég tel réttast, að þessari umr. sé lokið nú, en brtt. frestað til 3. umr., og vona, að menn geti orðið á það sáttir.