17.03.1942
Neðri deild: 20. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
40. mál, læknisvitjanasjóður
Helgi Jónasson:
Herra forseti ! Frv. þetta er mjög svipað frv. því, sem lagt var fyrir Alþ. í fyrra. Að vísu eru í því smábreyt., sem ég tel að ýmsu leyti til bóta.
Þegar verið var að undirbúa þetta frv. í fyrra, var það aðallega gert vegna þess, að styrkir þeir, sem að undanförnu hafa verið veittir til ýmissa læknishéraða, hafa verið mjög af handahófi. Upprunalega var tilgangurinn með læknisvitjanastyrkjum, sem einstökum hreppum hafa verið veittir í fjárlögum, sá, að styrkja þá hreppa, sem áttu erfiðara um læknissókn en þeir, er enga styrki hafa fengið. Þó hefur í einstökum tilfellum skort nokkuð á, að gætt hafi verið fulls jafnaðar um þessar styrkveitingar. Til þess að ráða nokkra bót á þessu, fluttum við hv. þm.- Ísf. frv. um þetta efni á aðalþinginu í fyrra, þar sem öllum héruðum, sem áttu erfiða læknissókn, var gefinn kostur á að stofna læknisvitjanasjóði. Þetta var til mikilla bóta frá því, sem áður var. Við vitum, sem í dreifbýlinu búum, hve erfitt og kostnaðarsamt er að ná til lækna sums staðar á landinu. Og ef notaðir eru bílar, þá er það svo dýrt, að ókleift er fyrir héruðin að rísa undir því. En með samþykkt þessa frv. eru mál þessi komin í mun betra horf en áður hefur verið.
Ég vil að lokum aðeins benda þeirri n., sem fær þetta til meðferðar, á, hvort ekki væri ráðlegt að leyfa þeim ráðh., sem þetta heyrir undir að heimila, þegar sérstaklega stendur á, að hver einstakur hreppur fái að stofna sérstakan sjóð, þó ekki sé gert ráð fyrir því í l. Þetta vildi ég benda á, af því ég veit, að ýmsir hreppar eru þannig settir, að þeir vildu mynda sinn eiginn sjóð.
Um hinar breyt. vil ég segja það, að þær eru mjög smávægilegar, og mæli ég með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.