12.05.1942
Efri deild: 55. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (1714)

84. mál, jarðræktarlög

*Brynjólfur Bjarnason:

Mér þykir vænt um að heyra, að hv. 1, þm. N.-M. hefur ekki snúizt hugur og er sammála tilgangi brtt. minnar, en hann ber fyrir sig það sama og fyrir 4 árum, að mælingar, sem væru nauðsynleg undirstaða, væru ekki til. Mér finnst hv. þm. hafa gengið of slælega fram í að skapa þann grundvöll, og ég hygg, að hann verði ekki skapaður fyrr en búið er að setja 1., sem gera það nauðsynlegt að skapa þennan grundvöll.