13.05.1942
Efri deild: 57. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)
84. mál, jarðræktarlög
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Ég skal ekki tefja umr. um þetta mál.
Það er rétt, að samningar hafa staðið yfir á búnaðarþingi um, hvernig ætti að haga þessu ákvæði, og sjálfstæðismenn hafa gengið inn á að breyta þessari 17. gr. í annað ákvæði ákaflega líkt, þó að fullnaðarsamkomulag hafi ekki enn orðið. Þó að hv. þm. hafi skilið orð mín bókstaflega, þannig að núna væri verið að semja um þetta atriði og einhver þn. búnaðarþings sæti í málinu, þá bar ekki að skilja það svo, heldur að samkomulagsumleitunum mundi haldið áfram, hvort sem umboð búnaðarþingsmanna er úti eða ekki.
Það er óviðeigandi af búnaðarþingsmanni að fara að innleiða deilur um þetta mál hér á þingi, áður en sýnt er, hvort búnaðarþing nær samkomulagi um þetta mál eða ekki, en má. ganga út frá því sem vísu, að verði náð innan skamms. Ég læt í ljós undrun mína yfir því, að reynt skuli hafa verið að draga málið þannig úr höndum búnaðarþings, eins og þessi búnaðarþingsmaður hefur gert.