13.05.1942
Efri deild: 57. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (1722)

84. mál, jarðræktarlög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég veit ekki, hvaðan hann hefur þetta prívatsamtal við mig og mér hafi þótt leiðinlegt að koma fram með till. Ég held, að það hljóti að hafa verið einhverjir draumórar hjá hæstv. forsrh., að hann hafi dreymt eitthvað í nótt, að ég hafi komið til hans í svefni, en ég hef ekki orðið var við, að ég sé neinn svefnfari.